Jólaból.

Fréttabréf Bæjarbóls jólin 2011


  
 

Jólaundirbúningur. 

 
Mánudaginn 28. nóvember hefst jólaundirbúningur í leikskólanum     
   
 
Á aðventunni læra börnin ljóðið Aðventa sjá hér fyrir neðan. Þau læra eitt erindi í hverri viku sem er síðan sungið í sameiginlegri söngstund í sal á föstudögum fram til jóla, um leið og kveikt er á kertunum á aðventukransinum.
Einnig syngja þau gömlu góðu jólalögin og bæta einu og einu nýju í safnið.
Jólasögur og hugvekjur um Jesúbarnið leggja sinn ljúfa blæ yfir jólaföstuna. Lögð verður áhersla á að draga úr þeirri spennu sem jólamánuðurinn veldur. 

Rauðurdagur

Föstudaginn 2. desember ætlum við að hafa rauðan dag og þá mætum við í einhverju rauðu og syngjum saman jólalög í söngstundinni í salnum

Helgistund.


Miðvikudaginn 7. desember kl. 10:30 verður helgistund í Vídalínskirkju, sóknarprestar taka á móti börnunum af þrem elstu deildum leikskólans Nónholti, Vinaholti, Stjörnuholti og börn fædd 2008 af Móholti.
Verður lagt af stað gangandi frá Bæjarbóli kl. 10:00.
Börn og starfsfólk á yngri deildum og börn fædd 2009 á Móholti ætla að eiga rólega söngstund saman í salnum á sama tíma.

Jólaball Bæjarbóls.

Laugardaginn 10. des. verður jólaball Bæjarbóls kl. 15:00 í sal Flataskóla. Dansað verður í kringum jólatréð og sérstakir gestir koma færandi hendi. Jólaballið er haldið af foreldrafélagi Bæjarbóls vonandi geta sem flestir tekið þátt í þessari stund.

 

Fyrsti jólasveinninn kemur til byggða aðfaranótt 12.desember.


Foreldraheimsókn á aðventunni. 
 
Miðvikudaginn  14. des. Foreldrum er boðið að koma í jólaheimsókn og þiggja kaffisopa og smákökur sem börnin hafa bakað, og kynnast jólaundirbúningi á leikskólanum.

Stjörnuholt, Vinaholt, Móholt og Nónholt kl. 8:30 - 9:30 

Hraunholt og Hnoðraholt kl. 15:00 - 16:00
 

Jólagleði. 
 
Þriðjudaginn 20. desember verður jólagleði leikskólans
Við ætlum að dansa í kringum jólatréð í tveimur hópum.

 Dansað í kringum jólatré:
9.45-10.30 Hraunholti, Móholti og Hnoðraholti
10.30-11.30 Stjörnuholti, Nónholti og Vinaholti  

11:30 – 13:00 Jólamatur börnum á Stjörnuholti borðið í mat á Bæjarbóli .

 

Brúðuleikrit aðventunnar

Miðvikudaginn 21. des. kl  10:00 og 11:00. verða brúðuleiksýningar " Pönnukakan hennar Grýlu" frá Brúðuheimum.
Kl. 10:00 Hraunholt, Hnoðraholt og Móholt
Kl. 11:00 Stjörnuholt, Nónholt og Vinaholt
                              


Leikfangadagur 
Fellur niður í desember. 
  
  
 
Aðventa.
Emmý Köller  1898
 
Við kveikjum einu kerti á
hans koma nálgast fer.
Sem fyrstu jól í jötu lá
og Jesúbarnið er.
 
Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans
Því drottinn sjálfur soninn þá
mun senda í líking manns.
 
Við kveikjum þremur kertum á,
því konungs beðið er
þótt Jesús sjálfur jötu og strá
á jólum kysi sér.
 
Við kveikjum fjórum kertum á.
Brátt kemur gesturinn,
og allar þjóðir þurfa að sjá
að þar er frelsarinn.
Sigurd Muri – Lilja Kristjánsdóttir þýddi.
 
Starfsfólk Bæjarbóls sendir börnunum og  fjölskyldum þeirra  bestu jóla og nýárskveðjur. 

           


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi