Fréttabréf.

Leikskólans Bæjarbóls.

Vor 2010


 

Opið hús

Laugardaginn 24. apríl verður “Opið hús “ á Bæjarbóli kl. 10:00 – 12:00. Þá bjóða börnin fjölskyldum sínum og vinum á myndlistarsýninguna og að skoða leikskólann sinn og þá starfsemi sem þar fer fram.
Við leggjum áherslu á að börnin eru gestgjafar en við starfsfólkið erum þeim til aðstoðar.

Við vonum að sem flestir foreldrar sjái sér fært að mæta og eiga ánægjulega stund með starfsfólki og börnum.

Frá foreldrafélaginu

Hin árlega kaffisala foreldrafélagsins verður á ”Opnu húsi” laugardaginn 24. apríl. Eins og undanfarin ár verður boðið upp á kaffi og meðlæti og kostar kaffi/djús og tvö stk. brauðmeti / kökur kr. 300 fyrir fullorðna og 200 fyrir börn. Allur ágóði rennur til leikfanga og tækjakaupa. Á síðasta hausti nýtti leikskólinn ágóðann fyrir verkefni í útikennslu.

Meðlæti þarf að skila inn föstudaginn 23. apríl eða laugardaginn 24. apríl kl: 9:30 – 10:00.
Nánari upplýsingar á deildum.



Listadagar barna og ungmenna eru dagana 24. - 30. apríl

Þemað okkar er enduvinnsla en yfirskrift listadaga er „leikandi list“.

Dagskrá Bæjarbóls:

Laugardaginn 24. apríl verður opið hús á Bæjarbóli 10:00 – 12:00 og er þá sýning á verkum barnanna.
Einnig er hægt að skoða verk eftir elstu börnin á Garðatorgi.
Mánudaginn 26. apríl er sameiginleg opnunarhátíð leik- og grunnskóla á Garðatorgi
Kl. 09.30 Skrúðganga barna fædd ´04,´05 og´06 frá leikskólanum að Garðatorgi.

Garðatorg:
Kl. 10 – 10.30 Sameiginleg hátíð í graslautinni
Stompatriði Flataskóla
Ingó úr Veðurguðunum
Fíasól tekur lagið

Kl. 13.00 – 14:00 verður dagskrá í garðinum á Bæjarbóli tónlist, dans og hreyfileikir.

Þriðjudaginn 27. til föstudagsins 30. apríl verður opin listasmiðja í sal leikskólans og munu deildarnar skipta dögunum á milli sín. Þessa sömu daga munu deildarnar fara í gönguferð á Garðatorg til að skoða listaverk sem verða þar til sýnis fyrir bæjarbúa.
Föstudaginn 30. apríl verður leikfangadagur.

Ferð í Húsdýragarðinn

Farið verður í vorferð í Húsdýragarðinn þriðjudaginn 4. maí. Farið verður frá Bæjarbóli um kl. 10:00 og komið aftur kl: 13:30. Kostnaður greiddur úr foreldrasjóði. Í hádeginu verða grillaðar pylsur.
Foreldrum barna á Hnoðraholti og Hraunholti er boðin þátttaka ef þeir geta, til að aðstoða yngri börnin. 
 

Heilsufáni.

Miðvikudaginn 12 maí kl. 15:00 verður Heilsufáninn dreginn að húni. Foreldrum verður boðið að taka þátt í dagskrá en verður hún auglýst síðar á heimasíðu leikskólans.

Íþróttadagur

Íþróttadagur er áætlaður þriðjudaginn 18. Maí. Dagskrá má sjá þegar nær dregur á heimasíðu leikskólans.

Útskriftarbörn

Í apríl og maí er alltaf mikið um að vera hjá elstu börnunum.

Þá eru þau að ljúka formlega leikskólagöngu sinni en svo tekur sumarstarfið við á léttu nótunum. Þau fara í heimsóknir í Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Sjálandsskóla eftir því hvaða skóla þau eiga að sækja í haust. Fyrst fóru þau og skoða skólann í fylgd deildarstjóra og síðan í apríl fara þau inn í 1. bekk og sitja í kennslustundum.

Vorskóli Flataskóla og Hofsstaðaskóla er þriðjudaginn 27. apríl, lagt af stað frá Bæjarbóli kl. 8:30.

Fimmtudaginn 20. maí er áætlað að afhenda börnunum úskriftarskjöl og síðan fer hópurinn í útivistarferð í Heiðmörk þar sem við grillum pylsur förum í ratleik og eigum skemmtilegan dag saman.


 

Foreldrar athugið

Segja þarf upp dvalarsamningi skriflega hjá deildarstjóra. Uppsagnarfrestur er einn mánuður og miðast við 1. eða 15. hvers mánaðar.

Breytingar á Bæjarbóli

Næsta leikskólaár verður leikskólinn með eina deild í Flataskóla, Þar verða elstu börnin þ.e. börn fædd 2005. Um tímabundna aðgerð að ræða vegna fjölgunar barna á leikskólaaldri í Garðabæ, en fyrirhugað er að nýr leikskóli muni taka til starfa í Akrahverfinu.

 

Skipulagsdagur:

Föstudaginn 14. maí er leikskólinn lokaður


Aukaval


Tungumál


Leturstærðir


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi